Welcome to TechNet Blogs Sign in | Join | Help

Microsoft Iceland

The coolest Microsoft team
Frí bók um Windows Server 2008 R2

Microsoft er að gefa bók, á netinu (eBook), um Windows Server 2008 R2 þar sem m.a. er kafað djúpt í Hyper-v  og fleira spennandi sem fylgir þessari útgáfu af netþjóninum.

Smelltu hér til að sækja bókina.

Náðu þér í Windows 7 betuna
Fyrir þá sem hafa áhuga á að prófa næsta stýrikerfið frá Microsoft þá má sækja betuna af því hér.
Það besta frá TechEd
Fyrir þá sem ekki komust á TechEd ITPro í haust, þá hefur Microsoft Íslandi ákveðið að halda "Það besta frá TechEd 2008" dagana 19. og 20. janúar. Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel Reykjavík. Margir spennandi fyrirlestrar eru í boði s,s, "A first look at Windows 7" sem og "What the cloud is my CIO thinking" sem er frumfluttur sérstaklega á þessari raðstefnu. Þess má geta að ÓKEYPIS er á ráðstefnuna og hvetjum við alla til að skrá sig sem fyrst. Nánari upplýsingar s.s. dagskrá, skráning og fleira má finna hér.
Microsoft kynnir Visual Studio 2010 og .NET framework 4.0
Nú nýlega kynnti Microsoft Corporation væntanlegar útgáfur af þróunartólunum sínum þ.e. Visual Studio 2010, .NET framework 4.0 og Visual Studio Team System 2010 (VSTS betur þekkt sem Rosario). Nýi hugbúnaðurinn á að hafa marga spennandi hluti sem einfalda enn frekar öfluga hugbúnaðargerð. Fréttatilkynningu Microsoft má lesa nánar hér. Einnig má finna nánari upplýsingar um hugbúnaðinn og nýju hlutina hér.
Dual boot með Bitlocker !
Það getur oft verið erfitt að prófa allar nýjustu lausnirnar á sama tíma s.s. nýjasta netþjóninn, Windows Server 2008 og nýjasta stýrikerfið, Windows Vista. En hér má finna leið til þess að hafa dual boot á ferðavélinni og í leiðinni tryggja gögnin með Bitlocker. Hafa skal þó í huga að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir áður en ráðist er í þetta þ.e. taka afrit af öllum mikilvægum gögnum, finna til alla helstu reklana (e.drivers) fyrir vélina sem og nýjustu uppfærsluna af BIOS-num. Þetta er aðeins ábendingum um möguleika og því er ábyrgðin öll ykkar ef eitthvað klikkar !
Náðu í magnaðar viðbætur við Internet Explorer

Hver hefur ekki gaman af nýjum viðbótum (e. add-ins) fyrir vafrann ? Mæli með því að áhugasamir kíki á þessar viðbætur.

Sumarið er tíminn

Yfirleitt er sumartíminn rólegheita tími hjá mörgum tæknimönnum. Sumarfrí starfsmanna og stjórnenda o.s.frv. En fyrir okkur hin sem ekki erum í fríi er sumarið ágætis tími til að kynna sér nýjar og spennandi lausnir. Eitt mest aðkallandi málefni okkar tæknimanna eru öryggismál og vilja allir hafa tölvukerfin sín vel varin fyrir hinum ýmsu tegundum árása s.s. DoS, trójuhestar, vírus og annað "hack". Án efa eru gögn fyrirtækja sem geymd eru á tölvutækuformi þau mikilvægurstu í rekstri fyrirtækjanna.

Öryggislausnir frá Microsoft hafa tekið stakkaskiptum undanfarin ár og í dag er Forefront ein öflugasta vörnin sem um getur á markaðnum. Lausnin er í senn ætluð netþjónum s.s. Windows Server, SharePoint Server, sem og útstöðvum s.s. vírusvörn, spamvörn og fleira.

Hafir þú áhuga á nánari upplýsingum um Forefront öryggislausnirnar getur þú kynnt þér þær hér

Hafir þú áhuga á að skoða umfjallanir varðandi öryggismál almennt þá mælum við með bloggsíðu Forefront teymisins.

Tech Ed EMEA IT Forum

Þá er komin tímasetning á hina geysivinsælu Tech Ed fyrir tæknimenn. Ráðstefnan verður haldin dagana 3.-7. nóvember og staðsetningin er sem fyrr Barcelona. Síðustu ár hefur Microsoft Íslandi staðið fyrir hópferð á þessa ráðstefnu og vel hefur tekist til. Stefnan er að halda því striki í ár en nánari upplýsingar verða veittar þegar nær dregur. Viljum við benda fólki á að fylgjast vel með á viðburðasíðu okkar þegar nær dregur.

Hvað er Tech Ed EMEA IT Forum ?

Þessi ráðstefna á vegum Microsoft í Evrópu þar sem allir helstu sérfræðingar bransans hittast og ræða nýjungar í tæknimálum. Þarna geta gestir leitað til sérfræðinganna og rætt málin, spurt spurningar svo dæmi séu tekin. Við hvetjum hvoru tveggja þá sem áður hafa farið sem og nýja að mæta í ár og upplifa einstaka stemmningu og skemmtan. Þá er ekki úr vegi að þú lærir eitthvað nýtt, kynnist nýrri tækni eða nýju fólki.

Afsláttur ef þú skráir þig snemma !

Þeir sem skrá sig til leiks fyrir 31. júlí fá veglegan afslátt af verðinu. Það er því vel þess virði að hafa hraðar hendur því vanalega verður uppselt á þessa ráðstefnu snemma.

Nánari upplýsingar

Upplýsingar um viðburði Microsoft Íslandi

Vefsíða ráðstefnunnar

Öryggismál með Ronald Beekelaar

Nú nýlega var öryggissérfræðingurinn Ronald Beekelaar hér á landi og fór fyrir ráðstefnu um öryggismál. Meðal þess sem Ronald kom að var hvernig tryggja megi öryggi fyrirtækja með notkun Forefront öryggislausnarinnar frá Microsoft. Nú er búið að gera samantekt af fyrirlestrum Ronalds um heiminn og hvetjum við alla til að kynna sér þá hér. Meðal þess sem Ronald fjallar um eru öryggislausnir fyrir Exchange Server 2007, Microsoft Office SharePoint Server (MOSS) 2007 sem og Forefront Edge lausn sem nefnd er Intelligent Application Gateway (IAG) 2007.

Microsoft Assessment and Planning Solution Accelerator

Með notkun, Microsoft Assessment and Planning (MAP), tólsins færðu nákvæmari yfirsýn yfir netkerfið þitt og nærð þannig meiri árangri með það. Þannig getur þú metið hvort netkerfið sé tilbúið í uppfærslur í lausnir eins og Windows Server 2008, Virtual Server 2005 R2, Hyper-V, Microsoft Application Virtualization, System Center Virtual Machine Manager, Windows Vista og Office 2007.

 Kynntu þér málið nánar í þessari grein

Windows Server 2008 leiðbeiningar

Náðu þér í leiðbeiningar sem taka á öllu því helsta er varðar Windows Server 2008.

Þú getur sótt leiðbeiningarnar hér.

System Center Virtual Machine Manager 2008 beta er klárt

SCVMM 2008 er næsta útgáfa af SCVMM sem gerir kleyft að halda utanum fjöldan allan af virtualization platformum s.s. Hyper-V, Virtual Server og VMware ESX.

Nú nýlega kynnti Microsoft beta útgáfu af SCVMM 2008 á slóðinni http://connect.microsoft.com

Endilega skoðið þessa nýju útgáfu, þið verðið ekki fyrir vonbrigðum !

Lausnir unnar með Windows SharePoint Services
Kynntu þér hvernig má leysa hin ýmsu viðskiptavandamál með notkun Windows SharePoint Services hér.
Administering Office Project Server 2007
Á þessari upplýsingasíðu getur þú fundið allar helstu upplýsingar um hvernig stjórna á Office Project Server 2007.
Ertu að fara setja upp leit fyrir SharePoint Server 2007 ?

Í þessu vefvarpi er farið yfir uppbyggingu Microsoft Office SharePoint Server 2007 og ræddar ýmsar nauðsynlegar upplýsingar sem snúa að innleiðingu leitarvélarinnar s.s. tópólógía, netþjóna rullur (e. server roles), ástand neta (e. network conditions) og öryggi. Hér getur þú kynnt þér þriggja laga högun umsjónarkerfisins sem saman stendur af miðlægri umsjón (e. central administration), shared services og site settings. Einnig kemstu að því hvernig kerfið er notað.  

More Posts Next page »
Page view tracker